Um okkur
RannMennt er rannsóknastofa um menntastefnu, alþjóðavæðingu og félagslegt réttlæti.
Meginmarkmið rannsóknarstofunnar er að skapa vettvang fyrir hóp fræðimanna sem stundar gagnrýnar rannsóknir (e. critical education research) á sviðum er varða:
- menntastefnufræði
- félagsfræði menntunar
- félagslega landfræði
- samspil fjölmenningarfræða
- kynjafræða
- hinseginfræða
- fötlunarfræða
í tengslum við félagslegt réttlæti í uppeldi og menntun.
Lögð er áhersla á að skoða áhrif samtvinnunar ólíkra þátta, svo sem stéttar, kyngervis, kynhneigðar, uppruna og fötlunar á valdatengsl og félagslegt réttlæti í uppeldi og menntun.
Kortlagning stéttar á íslenskum menntavettvangi er eitt af aðkallandi viðfangsefnum stofunnar þar sem því hefur lítið sem ekkert verið sinnt í íslenskum rannsóknum fram að þessu. Aðrar megináherslur í rannsóknum eru félagslegt réttlæti í menntun, menntastefnur í alþjóðlegu samhengi, áhrif markaðs- og alþjóðavæðingar og inngildandi menntunar (inclusive education) á stefnumótun, uppeldi og skólastarf. Stofan er vettvangur fyrir og tekur þátt í umræðu sem varða þessi viðfangsefni.
Markmið stofunnar er að móta nýtt fræðasvið í menntarannsóknum á Íslandi á breiðum grunni; miðla þekkingu, efla umræðu, valdefla fagfólk og hagsmunaaðila á vettvangi menntunar, og skapa verðandi fræðimönnum, meðal annars meistara- og doktorsnemum, vettvang fyrir þátttöku í gagnrýnum menntarannsóknum.
Markmið þess fræðasamfélags sem að stofunni stendur er að efla rannsóknir á sviði gagnrýninna menntastefnufræða og skyldra sviða og vera vettvangur fræðaþróunar á því sviði. Rannsóknarstofunni er ætlað það hlutverk að eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna á sviðinu.
Að stofnun rannsóknarstofunnar standa nokkrir fræðimenn af menntavísindasviði Háskóla Íslands og nemendur þeirra.
Þemu
Rannsóknarverkefnin skiptast í þrjú þemu, sem eru:
Alþjóðavæðing
- hlekkur1
- hlekkur2
- hlekkur3
Menntastefna
- hlekkur1
- hlekkur2
- hlekkur3
Félagslegt réttlæti
- hlekkur1
- hlekkur2
- hlekkur3